Birt
Hvað segja lögin?
Samkvæmt 7. gr. innheimtulaga nr. 95/2008 skal kröfuhafi eða innheimtuaðili senda greiðanda eina skriflega viðvörun eftir gjalddaga kröfu. Í viðvöruninni kemur fram að vænta megi frekari innheimtuaðgerða ef krafan verður ekki greidd innan tíu daga frá því að viðvörunin var send. Heimilt er að veita lengri frest.
Greiðsla telst hafa borist í tæka tíð ef hún berst fyrir lok frestsins, eða ef greiðandi getur sýnt fram á að hún hafi verið sett í ábyrgðarpóst áður en fresturinn rann út.
Hvað á að koma fram í innheimtuviðvörun?
Í viðvöruninni skal tilgreina:
- nöfn, kennitölur og heimilisföng greiðanda, kröfuhafa eða umboðsmanns hans og innheimtuaðila,
- lýsingu á kröfunni,
- fjárhæð kröfunnar, sundurliðaða í höfuðstól og viðbótarkröfur, svo sem dráttarvexti og innheimtuþóknun,
- greiðslustað, og
- að vanskil geti leitt til málshöfðunar eða annarra aðgerða samkvæmt réttarfarslögum og aukins kostnaðar fyrir greiðanda.
Bæði í viðvöruninni og síðari bréfum skal taka fram ef næsta skref felur í sér nýtt innheimtustig með auknum kostnaði.
Ef eitthvað af þessu vantar, eða þú sérð ekki hvaða kröfu er verið að innheimta, skaltu hafa samband við þann sem sendi viðvörunina. Ef annmarki á viðvöruninni veldur því að hún þjónar ekki tilgangi sínum má aðeins krefja þig um kostnað vegna viðvörunarinnar sjálfrar, ekki frekari innheimtukostnað.
Hvað má innheimtuviðvörun kosta?
Samkvæmt reglugerð nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar má krefja greiðanda um allt að 950 kr. fyrir innheimtuviðvörun. Fjárhæðir reglugerðarinnar eru án virðisaukaskatts, sem getur bæst við. Greiðandi greiðir aðeins fyrir eina skyldubundna innheimtuviðvörun vegna hverrar kröfu. Sé sérstakur eindagi tilgreindur á kröfunni miðast viðvörunin við eindagann.
Hafi gjalddagi verið ákveðinn fyrir fram getur kröfuhafi að jafnaði einnig krafist dráttarvaxta frá gjalddaga, samkvæmt 5. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Nánar um kostnaðinn í greininni Hvernig reiknast innheimtukostnaður?
Hvað gerist ef krafan er ekki greidd?
Ef krafan er ógreidd þegar fresturinn er liðinn getur innheimta haldið áfram með innheimtubréfum, ítrekunum og símtölum. Að minnsta kosti tíu dagar skulu líða á milli viðvörunar og næsta bréfs og á milli bréfa. Beri það ekki árangur getur kröfuhafi ákveðið að senda kröfuna í löginnheimtu, þar sem kostnaður getur aukist verulega.
Í reglugerð nr. 37/2009 telst innheimtuviðvörunin til fruminnheimtu. Hjá Gjaldskilum markar hún upphaf innheimtunnar og er fyrsta skrefið í milliinnheimtu.
Eru undantekningar?
Já, í nokkrum tilvikum:
- Greiðandi í atvinnurekstri: Kröfuhafi og greiðandi geta samið um að víkja frá reglunum um innheimtuviðvörun.
- Innheimta vegna eigin starfsemi: Sá sem innheimtir eigin kröfur getur sameinað greiðsluseðil og viðvörun og sent fyrir gjalddaga, ef hann fellur ekki undir 2. mgr. 3. gr. innheimtulaga (t.d. lögmenn og fjármálafyrirtæki). Þá má ekki krefjast gjalds fyrir viðvörunina ef krafan er greidd í síðasta lagi tíu dögum eftir gjalddaga.
- Hætta á að fullnusta kröfunnar spillist, eða aðrir mikilvægir hagsmunir eru í húfi: þá má víkja frá skyldunni til að senda viðvörun.
- Greiðandi hefur sannanlega mótmælt kröfunni: þá má bera ágreininginn beint undir dómstóla.
Hvað á ég að gera ef ég fæ innheimtuviðvörun?
- Athugaðu kröfuna. Kannastu við hana og er fjárhæðin rétt?
- Greiddu innan frestsins ef krafan er rétt. Þá bætist ekki frekari innheimtukostnaður við.
- Hafirðu þegar greitt, sendu greiðslustaðfestingu og óskaðu eftir leiðréttingu.
- Teljirðu kröfuna ranga, tilgreindu skriflega hvaða fjárhæð eða atriði þú mótmælir og hvers vegna. Geymdu afrit.
- Getirðu ekki greitt allt í einu, óskaðu eftir greiðsluáætlun. Fáðu skriflega staðfestingu á kostnaði og vöxtum. Gjald fyrir gerð skriflegs samkomulags getur numið allt að 2.700 kr. án vsk.
Seðlabanki Íslands hefur eftirlit með innheimtuaðilum og tekur við ábendingum um innheimtuhætti.
Ef þú fékkst innheimtuviðvörun frá Gjaldskilum getur þú skoðað kröfuna og greitt hana á Greiðendavefnum eða haft samband við okkur.
Heimildir
- Innheimtulög nr. 95/2008, 3., 6., 7. og 11. gr.
- Reglugerð nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl., 1., 5. og 6. gr.
- Lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, 5. gr.
Þessi grein er almenn fræðsla og kemur ekki í stað lögfræðiráðgjafar í einstökum málum.