Birt
Hvenær fer krafa í löginnheimtu?
Kröfuhafi getur óskað eftir löginnheimtu þegar milliinnheimta hefur ekki borið árangur. Löginnheimta er innheimta á grundvelli réttarfarslaga, svo sem laga um aðför, nauðungarsölu, meðferð einkamála og gjaldþrotaskipti, og er í höndum lögmanna. Hjá Gjaldskilum annast Gjaldskil Lög ehf. löginnheimtu.
Hámarksfjárhæðir reglugerðar nr. 37/2009 gilda ekki um löginnheimtu. Um kostnaðinn er fjallað í greininni Hvernig reiknast innheimtukostnaður?
Ferlið
Ekki fara öll mál í gegnum öll skrefin. Næsta skref ræðst meðal annars af því hvort aðfararheimild liggur þegar fyrir, þ.e. skjal sem heimilar fjárnám án dóms, og af því hvernig greiðandi bregst við. Máli getur lokið með greiðslu eða samkomulagi á hvaða stigi sem er.
Löginnheimtubréf
Fyrsta skrefið er yfirleitt bréf frá lögmanni þar sem greiðandi er krafinn um greiðslu og upplýstur um að frekari aðgerðir hefjist ef ekki er brugðist við.
Þegar aðfararheimild liggur fyrir: greiðsluáskorun
Sumar kröfur má fullnusta með fjárnámi án þess að fá fyrst dóm. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför á þetta meðal annars við um skuldabréf fyrir ákveðinni fjárhæð, ef undirskrift útgefanda er vottuð af lögbókanda, lögmanni, löggiltum fasteignasala eða tveimur vitundarvottum og bréfið heimilar berum orðum aðför án undangengins dóms eða réttarsáttar. Víxlar og tékkar geta einnig verið aðfararheimildir.
Áður en fjárnáms er krafist á grundvelli slíkra skjala þarf að senda greiðanda greiðsluáskorun eftir gjalddaga, þar sem tekið er fram að aðfarar verði krafist ef áskoruninni er ekki sinnt. Hún er send í ábyrgðarbréfi eða birt af stefnuvotti. Fimmtán daga fresturinn hefst þegar greiðandi, eða sá sem má taka við birtingu fyrir hans hönd, fær áskorunina í hendur eða þegar hún er birt.
Þegar leita þarf dómsúrlausnar: stefna
Reikningur einn veitir að jafnaði ekki heimild til fjárnáms. Liggi engin aðfararheimild fyrir og náist ekki samkomulag þarf kröfuhafi almennt að höfða dómsmál. Greiðanda er birt stefna og málið er þingfest í héraðsdómi.
- Ef greiðandi mætir ekki og skilar ekki greinargerð getur dómari lokið málinu með því að árita stefnuna um að kröfurnar séu aðfararhæfar, ef málsgögn nægja til að taka þær til greina. Áritunin hefur sama gildi og dómur og henni verður ekki áfrýjað. Greiðandi getur þó beðið um endurupptöku innan þriggja mánaða frá málalokum, ef beiðnin berst innan mánaðar frá því að honum urðu úrslitin kunn, sbr. 137. gr. laga nr. 91/1991.
- Ef greiðandi tekur til varna fer málið í hefðbundna dómsmeðferð. Því getur lokið með dómi, sátt, niðurfellingu eða frávísun.
Fjárnám
Með dóm, áritaða stefnu eða aðra aðfararheimild getur kröfuhafi krafist fjárnáms hjá sýslumanni þegar aðfararfrestur er liðinn. Við fjárnám fæst trygging fyrir kröfunni í eignum greiðanda sem heimilt er að gera fjárnám í; ákveðnar eignir, svo sem nauðsynlegir heimilismunir, eru undanþegnar. Dugi eignir ekki fyrir kröfunni verður fjárnámið árangurslaust að hluta eða öllu leyti.
Nauðungarsala
Hafi fjárnám verið gert í eign, til dæmis fasteign eða bifreið, má krefjast nauðungarsölu á henni. Einnig má krefjast nauðungarsölu á grundvelli þinglýsts veðskuldabréfs, ef berum orðum er tekið fram í því að nauðungarsala megi fara fram án undangengins dóms, sáttar eða fjárnáms.
Í síðara tilvikinu þarf fyrst að senda greiðanda sérstaka greiðsluáskorun þar sem eignin og krafan eru tilgreindar. Minnst fimmtán dagar þurfa að líða frá því að greiðandi fær hana í hendur eða hún er birt, áður en nauðungarsölu er krafist.
Gjaldþrotaskipti
Ein af heimildum kröfuhafa til að krefjast gjaldþrotaskipta er að fjárnám hafi reynst árangurslaust að hluta eða öllu leyti á síðustu þremur mánuðum fyrir frestdag. Greiðandi getur komið í veg fyrir skiptin með því að sýna fram á að hann geti engu að síður greitt skuldbindingar sínar á gjalddaga eða verði fær um það innan skamms. Beiðnin er heldur ekki tæk ef krafan er nægilega tryggð eða þriðji maður býður fram greiðslu. Héraðsdómur úrskurðar um skiptin, og sá sem krefst gjaldþrotaskipta getur þurft að setja tryggingu fyrir kostnaði af þeim.
Er hægt að semja í löginnheimtu?
Þú getur óskað eftir samkomulagi meðan málið er til meðferðar, en kröfuhafi þarf að samþykkja skilmálana. Því fyrr sem samið er, því minni verður kostnaðurinn, því hann bætist við með hverju skrefi. Leitaðu samkomulags áður en boð er samþykkt við nauðungarsölu eða úrskurður gengur um gjaldþrotaskipti, og mættu þangað sem þú ert boðaður af dómstól eða sýslumanni meðan þú bíður svars.
Ráð til greiðenda
- Ekki hunsa greiðsluáskorun eða stefnu. Ef ekki er mætt við þingfestingu getur málinu lokið með áritun án þess að þú komir sjónarmiðum þínum á framfæri.
- Ef þú telur kröfuna ranga skaltu leita þér lögfræðiaðstoðar og taka til varna.
- Ef þú getur ekki greitt skaltu hafa samband og leita samkomulags. Einnig getur verið gagnlegt að leita til Umboðsmanns skuldara, sem veitir einstaklingum endurgjaldslausa ráðgjöf.
Ráð til kröfuhafa
Löginnheimta er íþyngjandi fyrir greiðendur og getur tekið tíma. Áður en mál er sent áfram er rétt að meta líkur á árangri, til dæmis hvort greiðandi eigi eignir og hvort krafan sé óumdeild. Gjaldskil Lög veitir ráðgjöf um næstu skref á hverju stigi. Sjá löginnheimtu og gjaldskrá.
Heimildir
- Lög nr. 90/1989 um aðför, 1. og 7. gr.
- Lög nr. 91/1991 um meðferð einkamála, 113. og 137. gr.
- Lög nr. 90/1991 um nauðungarsölu, 6. og 9. gr.
- Lög nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., 65. og 66. gr.
- Lög nr. 77/1998 um lögmenn, 24. gr. a.
Þessi grein er almenn fræðsla og kemur ekki í stað lögfræðiráðgjafar í einstökum málum.