Birt

Úr hverju er krafan samsett?

Krafa í innheimtu skiptist að jafnaði í þrennt:

  • Höfuðstól, þ.e. upphaflegu fjárhæðina sem átti að greiða.
  • Dráttarvexti, sem geta reiknast af ógreiddri fjárhæð.
  • Innheimtukostnað, þ.e. þóknun fyrir innheimtuviðvörun, innheimtubréf, símtöl og aðrar aðgerðir.

Í innheimtuviðvörun skal sundurliða höfuðstól og viðbótarkröfur. Berðu síðari bréf saman við þá sundurliðun.

Dráttarvextir

Hafi gjalddagi verið ákveðinn fyrir fram má að jafnaði krefjast dráttarvaxta frá og með gjalddaga fram að greiðsludegi. Hafi ekki verið samið um gjalddaga má almennt reikna dráttarvexti þegar mánuður er liðinn frá því að kröfuhafi krafði greiðanda sannanlega og með réttu um greiðslu. Dráttarvextir reiknast sem dagvextir. Sérreglur gilda meðal annars við málshöfðun og um skaðabótakröfur.

Samkvæmt 6. gr. laga nr. 38/2001 eru dráttarvextir samtala vaxta algengustu skammtímalána Seðlabanka Íslands til lánastofnana og sjö prósentustiga álags. Í verslunarviðskiptum sem falla undir lög nr. 8/2015 um greiðsludrátt í verslunarviðskiptum er álagið átta prósentustig, nema samið hafi verið um hærri dráttarvexti. Seðlabankinn birtir dráttarvexti og þeir geta breyst um hver mánaðamót.

Hámarksfjárhæðir í frum- og milliinnheimtu

Reglugerð nr. 37/2009 ákveður hvað má í mesta lagi krefja greiðanda um fyrir hverja aðgerð áður en löginnheimta hefst. Fjárhæðirnar eru án virðisaukaskatts.

Aðgerð Hámark
Innheimtuviðvörun 950 kr.
Milliinnheimtubréf, höfuðstóll til og með 2.999 kr. 1.300 kr.
Milliinnheimtubréf, höfuðstóll 3.000–10.499 kr. 2.100 kr.
Milliinnheimtubréf, höfuðstóll 10.500–84.999 kr. 3.700 kr.
Milliinnheimtubréf, höfuðstóll 85.000 kr. og yfir 5.900 kr.
Fyrsta og önnur ítrekun milliinnheimtubréfs Sama og bréfið
Eitt símtal í milliinnheimtu, þar sem samband næst 550 kr.
Gerð skriflegs samkomulags um greiðslu (greiðsluáætlun) 2.700 kr.

Reglugerðin setur líka skýrar takmarkanir:

  • Greiðandi greiðir aðeins fyrir eina innheimtuviðvörun, eitt milliinnheimtubréf, tvær ítrekanir og eitt símtal þar sem samband næst.
  • Óheimilt er að leggja á prósentugjöld miðað við skuld, vanskilagjöld eða önnur sambærileg gjöld.
  • Að minnsta kosti tíu dagar skulu líða á milli viðvörunar og bréfs og á milli bréfa.

Reglugerðin nær ekki til innheimtu opinberra aðila á sköttum og gjöldum. Vegna umdeildrar kröfu getur komið til viðbótarkostnaðar ef sérfræðiráðgjöf var nauðsynleg. Í verslunarviðskiptum getur kröfuhafi krafist 6.700 kr. innheimtubóta samkvæmt lögum nr. 8/2015, en þær koma til frádráttar innheimtukostnaði.

Dæmi um innheimtukostnað vegna 50.000 kr. kröfu

Óumdeild krafa með 50.000 kr. höfuðstól er ekki greidd. Greiðanda er send viðvörun, milliinnheimtubréf og tvær ítrekanir með tilskildum fresti og samband næst í einu símtali. Hámark innheimtukostnaðar fyrir þessar aðgerðir er þá:

Aðgerð Fjárhæð
Innheimtuviðvörun 950 kr.
Milliinnheimtubréf 3.700 kr.
Fyrsta ítrekun 3.700 kr.
Önnur ítrekun 3.700 kr.
Símtal 550 kr.
Samtals, án vsk. 12.600 kr.

Dráttarvextir og hugsanlegt gjald fyrir skriflega greiðsluáætlun eru utan dæmisins, og virðisaukaskattur getur bæst við. Sé krafan greidd innan frests innheimtuviðvörunarinnar er innheimtukostnaðurinn að hámarki 950 kr. án vsk.

Kostnaður í löginnheimtu

Reglugerð nr. 37/2009 gildir ekki um löginnheimtu, þ.e. innheimtu á grundvelli réttarfarslaga. Gjaldskrá lögmannsstofu sýnir þóknun hennar gagnvart umbjóðanda, þ.e. kröfuhafa. Hvaða kostnaðar má krefja greiðanda um ræðst af öðrum reglum:

  • Við mat á því hvaða endurgjald er hæfilegt að krefja greiðanda um er meðal annars litið til leiðbeinandi reglna nr. 450/2013 fyrir lögmenn um endurgjald vegna kostnaðar af löginnheimtu.
  • Samkvæmt 24. gr. a lögmannalaga nr. 77/1998 má ekki reikna hlutfallsþóknun af þeim hluta skuldar sem fellur í gjalddaga vegna gjaldfellingar eftirstöðva vegna vanskila á afborgun eða vöxtum.
  • Fari mál fyrir dóm ákveður dómari málskostnað.

Kostnaður í löginnheimtu er að jafnaði mun hærri en í milliinnheimtu. Sjá Hvað gerist í löginnheimtu? og gjaldskrá Gjaldskila.

Hvernig er hægt að halda kostnaði í lágmarki?

  • Greiddu í síðasta lagi á gjalddaga, eða innan frests innheimtuviðvörunar.
  • Hafðu samband um leið og ljóst er að greiðsla dregst. Greiðsluáætlun getur komið í veg fyrir að krafa fari í löginnheimtu.
  • Ef þú telur kröfuna ranga, mótmæltu henni sem fyrst og skriflega.

Þessi grein er almenn fræðsla og kemur ekki í stað lögfræðiráðgjafar í einstökum málum.

Hafðu samband

Við förum yfir þau úrræði sem standa til boða og finnum lausn sem hentar.