Uppfært
Ógreiddir reikningar kosta
Ógreiddur reikningur er fé sem fyrirtækið hefur þegar unnið fyrir en fær ekki í hendur. Þegar selt er í reikning lánar fyrirtækið í raun viðskiptavininum fyrir vörunni eða þjónustunni, og það er kostnaðarsamt. Á meðan beðið er eftir greiðslu þarf að fjármagna reksturinn með eigin fé eða lánsfé, svo sem yfirdrætti, og hver dagur í vanskilum eykur þann kostnað.
Eftirfylgnin tekur líka tíma starfsfólks: að senda áminningar, svara fyrirspurnum, semja um greiðslur og fylgjast með frestum. Þegar mikið er að gera vill hún oft sitja á hakanum.
Greiðendur sem eiga ekki fyrir öllum reikningum sínum forgangsraða. Kröfur sem fylgt er eftir með skýrum frestum og afleiðingum eru greiddar fyrst, en þeir kröfuhafar sem innheimta ekki lenda neðst á listanum.
Það borgar sig því ekki að bíða of lengi. Eftir því sem lengra líður frá eindaga getur orðið erfiðara að ná sambandi við greiðanda og upplýsa málið, og almennur fyrningarfrestur kröfuréttinda er fjögur ár samkvæmt 3. gr. laga nr. 150/2007. Með föstu innheimtuferli er hverri kröfu fylgt eftir á sama hátt og á réttum tíma.
Innheimta fyrir aðra er leyfisskyld
Samkvæmt 3. gr. innheimtulaga nr. 95/2008 má innheimtuaðili aðeins stunda innheimtu fyrir aðra ef hann hefur innheimtuleyfi, starfar frá fastri starfsstöð hér á landi og hefur starfsábyrgðartryggingu. Undanþegnir eru meðal annars lögmenn, fjármálafyrirtæki og opinberir aðilar. Gjaldskil ehf. starfar með innheimtuleyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands, sem hefur eftirlit með starfseminni.
Fyrir kröfuhafa skiptir þetta máli:
- Trygging: Leyfisskyldur innheimtuaðili þarf að hafa starfsábyrgðartryggingu sem bætir kröfuhöfum og greiðendum fjárhagstjón sem rakið verður til gáleysis í störfum hans.
- Þagnarskylda: Innheimtuaðili og starfsmenn hans eru bundnir þagnarskyldu um viðskiptamál og persónuhagi sem þeir fá vitneskju um í starfi.
- Rétt framkvæmd: Lögin gera kröfur um efni innheimtuviðvörunar, fresti og góða innheimtuhætti, og reglugerð nr. 37/2009 setur hámark á þann kostnað sem krefja má greiðanda um. Sé innheimtuviðvörun ábótavant getur það takmarkað hvaða kostnað má krefja greiðanda um. Ferlar Gjaldskila eru sniðnir að þessum reglum.
Öll stig innheimtu á einum stað
Gjaldskil annast innheimtu á öllum stigum:
- Fruminnheimta: Reikningar berast rafrænt úr fjárhagskerfi kröfuhafa og kröfur eru stofnaðar sjálfvirkt í banka.
- Milliinnheimta: Ef krafa er ekki greidd á eindaga er send innheimtuviðvörun og henni fylgt eftir með innheimtubréfum og símtölum eftir óskum kröfuhafa.
- Löginnheimta: Beri milliinnheimta ekki árangur tekur Gjaldskil Lög ehf. við með löginnheimtubréfum og, ef þörf krefur, sértækri löginnheimtu. Kröfuhafi fær ráðgjöf um hvort og hvernig rétt sé að halda málinu áfram.
Krafan færist á milli stiga án þess að kröfuhafi þurfi að skipta um þjónustuaðila eða senda gögn á milli, og kröfuhafi ræður ferðinni á hverju stigi. Ferlið er það sama hvort sem kröfurnar eru fáar eða margar.
Rafrænt og hratt
Gjaldskil birtir greiðendum innheimtuerindi rafrænt þar sem því verður við komið. Þá tapast enginn tími við prentun og póstburð, og greiðandi fær þann frest sem honum ber. Ekki þarf að skipta um fjárhagskerfi, því reikningar berast beint úr því kerfi sem fyrir er. Kröfuhafar sjá stöðu krafna sinna á Þjónustuvef Gjaldskila eða í eigin fjárhagskerfi.
Gott samband við viðskiptavini
Margar ástæður geta legið að baki því að krafa er ekki greidd á eindaga, og oft vill kröfuhafi halda áfram viðskiptum við greiðandann. Gjaldskil leggur áherslu á persónulega þjónustu og er til taks fyrir bæði kröfuhafa og greiðendur. Greiðendur geta skoðað og greitt kröfur á Greiðendavefnum og gert greiðslusamkomulag ef þeir geta ekki greitt í einu lagi. Markmiðið er að leysa málið áður en til löginnheimtu kemur.
Hvað kostar innheimtan?
Kostnaður kröfuhafa vegna innheimtunnar er almennt enginn. Innheimtukostnaður fellur á greiðanda, innan hámarka reglugerðar nr. 37/2009. Kröfuhafi greiðir aðeins ef hann kýs sjálfur að bera hluta af kostnaði greiðanda.
Ef Gjaldskil annast einnig reikningagerð og stofnun krafna fer kostnaður við það eftir gjaldskrá. Um löginnheimtu gildir gjaldskrá Gjaldskila Lög.
Sjá gjaldskrá og greinina Hvernig reiknast innheimtukostnaður?
Reynsla og traust
Gjaldskil rekur sögu sína aftur til ársins 1986 og er eitt reynslumesta innheimtufélag landsins. Félagið er í eigu Arctica Eignarhaldsfélags (50%), Gjaldskila Lög ehf. (25%) og framkvæmdastjóra félagsins (25%). Gjaldskil Lög ehf. er í eigu lögmannsstofanna LEX og Legalis. Nánar um Gjaldskil.
Hvernig hefst samstarfið?
Hafðu samband og sérfræðingar okkar aðstoða þig við að setja upp ferlið: hvernig reikningar berast úr fjárhagskerfinu, hvenær krafa fer í milliinnheimtu og hvaða aðgerðum er beitt.
Heimildir
- Innheimtulög nr. 95/2008, 3., 6., 7., 13., 14. og 15. gr.
- Reglugerð nr. 37/2009 um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar o.fl.
- Lög nr. 150/2007 um fyrningu kröfuréttinda, 3. gr.
Þessi grein er almenn fræðsla og kemur ekki í stað lögfræðiráðgjafar í einstökum málum.