Löginnheimta

Ef milliinnheimta  ber ekki árangur býðst kröfuhöfum fagleg ráðgjöf um næstu skref.

Löginnheimta er í eðli sínu íþyngjandi fyrir greiðendur, enda öllum tiltækum úrræðum íslenska réttarkerfisins beitt. Því leggjum við  áherslu á faglega ráðgjöf og gott upplýsingaflæði til kröfuhafa um næstu skref.

Aðgerðir í löginnheimtu geta meðal annars verið stefnubirting, greiðsluáskorun og dómsmeðferð. Ferli lögfræðiinnheimtu endar oftast með eingreiðslu skuldar eða samningi um greiðslu skuldar. Í sumum tilfellum nást ekki samningar og þá getur ferlið endað með fjárnámi, nauðungarsölu og gjaldþroti.

Aðgerðir í löginnheimtu

Aðgerðir geta meðal annars verið greiðsluáskorun, stefnubirting og dómsmeðferð. Ferlið endar oftast með eingreiðslu skuldar eða samningi um greiðslu hennar. Náist ekki samningar getur ferlið endað með fjárnámi, nauðungarsölu og gjaldþroti.

Ráðgjöf og upplýsingaflæði

Löginnheimta er í eðli sínu íþyngjandi fyrir greiðendur, enda er öllum tiltækum úrræðum íslenska réttarkerfisins beitt. Þess vegna leggjum við áherslu á faglega ráðgjöf og gott upplýsingaflæði til kröfuhafa um næstu skref á hverju stigi máls.

Algengar spurningar

Hvenær fer mál í löginnheimtu?
Þegar milliinnheimta hefur ekki borið árangur og kröfuhafi ákveður, að fenginni ráðgjöf, að halda málinu áfram.

Hver annast löginnheimtuna?
Löginnheimta er í höndum Gjaldskila Lög ehf.

Er hægt að semja eftir að mál er komið í löginnheimtu?
Já, ferlið endar oftast með eingreiðslu eða samningi um greiðslu skuldarinnar.